Blaðamenn: Bulla alltaf meira um vísindi

Morgunblaðið fylgir enn og aftur fordæmi annara fjölmiðla og birtir innihaldslausa og frekar heimskulega grein um rannsókn einhverra vísindamanna sem hefur verið lögð töluverð vinna í. Enn og aftur fylgir blaðið þeirri - að því er virðist - hefð (?) blaðamanna að misskilja rannsóknir vísindamanna út í hið óendanlega. Hefur það að misskilja vísindi hryllilega ekki annars fylgt blaðamennsku æði lengi?

Ætti ég ekki að fletta upp upprunalegu greininni og skoða hvort ég hafi rétt fyrir mér? Nei, ég nenni ekki enn einu sinni að leita uppi greinar úr vísindatímaritum til að komast að því að Moggamenn og aðrir blaðamenn náðu ekki megininntaki rannsóknarinnar. Ég hef þónokkrum sinnum staðið í því að leita uppi greinar, borið saman við fréttir Moggans og skrifað um niðurstöðurnar hér á þessum vettvangi. Ég ætla ekki að standa í því hér og nú.

Ekki halda að það sé bara við blaðamenn Moggans að sakast í þessum efnum. Vandamálið virðist vera fremur útbreitt -- ég hef jú líka skoðað erlenda fjölmiðla, en þaðan einmitt eru flestar greinar á íslenskum fjölmiðlum um vísindi þýddar. Ég hallast að því að mjög margir blaðamenn líti á greinar hvors annars til staðfestingar því að þeirra greinar séu jú allt í lagi... séu ekki alveg út úr kortinu. Skiljanlega, þetta gerum við öll.  

En vonandi er það samt ekki svo að ég misskilji eitthvað blaðamennsku. Það væri slæmt. Er ekki annars tilgangurinn með fréttum ennþá að segja sannleikann, svona eins langt og mögulegt er? Ekki sýnist mér svo þegar kemur að vísindum, þá er frekar hent gaman að þessum vísindamönnum og þeirra rannsóknum, sem oft eru settar fram eins og þær séu afar heimskulegar. Blaðamenn þurfa alvarlega að hugsa sinn gang þegar kemur að vísindafréttum. Það væri þeim til afar mikils sóma að lesa sér til um vísindi, þó ekki nema bara grundvallaratriði.


mbl.is Vísbending um að menn séu gáfaðri en apar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Egill Óskarsson

http://www.sciencemag.org/cgi/content/abstract/317/5843/1360 Gjörðu svo vel. Það þarf ansi hreint ákveðin brotavilja til að skilja þetta á sama veg og mbl.is gerir

Egill Óskarsson, 7.9.2007 kl. 22:19

2 Smámynd: Svartagall

Tek undir þetta. Á Íslandi vantar eflaust blaðamenn með lágmarks menntun í raunvísindum, en það er engin afsökun fyrir blaðamenn að vinna ekki vinnuna sína þegar kemur að vísindafréttum. Það þarf enga vísindamenntun til að finna þetta abstrakt sem Egill linkar á, ekki heldur til að sjá að upphaflega fréttin er misskilningur eða útúrsnúningur á niðurstöðum rannsóknarinnar.

Svartagall, 8.9.2007 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband